
Brasserie Kársnes opnaði í september 2021 við smábátahöfnina á Kársnesinu í Kópavogi. Staðinn reka hjónin Ólafur Helgi Kristjánsson yfirkokkur og Sólveig J. Guðmundsdóttir. Óli og hans teymi sjá um eldhúsið en Sólveig stýrir salnum.
Matseðillinn er fjölbreyttur, frá street food og steikum yfir í fisk dagsins, og um helgar er brunch með amerískum, dönskum og spænskum áhrifum. Vínlistinn er vandaður og kokteilarnir gerðir af alúð.
Við viljum að fólki líði eins og heima hjá sér, hvort sem það kemur í einn drykk eftir vinnu eða heila kvöldstund með vinum.

